Íþróttabandalag Reykjanesbæjar var stofnað 29. maí 1996. Það heldur utan um viðamikið íþróttastarf í sveitarfélaginu. Markmiðið er að efla íþróttaiðkun meðal bæjarbúa og ekki síst ungmenna.

  • Sextán félög eru starfandi innan ÍRB
  • Barnastarf er stór þáttur í íþróttastarfinu
  • Hundruð iðkenda á degi hverjum
  • Afreksfólk í fjölda greina

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB) er héraðssamband íþróttafélaga í Reykjanesbæ. Það starfar samkvæmt lögum ÍSÍ 24. grein og íþróttalögum.

Tilgangur ÍRB er að vinna að eflingu og skipulagninu íþróttastarfsemi í Reykjanesbæ og hafa forystu sameiginlegra íþróttamála svo sem lög ÍSÍ mæla fyrir um m.a. með því að annast samstarf fyrir hönd bandalagsaðilanna við bæjarstjórn og aðra opinbera aðila.