Hér má nálgast viðbragðsáætlun íþrótta- og æskulýðsstarfs við ofbeldi, einelti, slysum og öðru sem gæti komið upp á. Áætlunin er frá Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Tilgangur samræmdrar áætlunar er að sporna við atvikum sem geta mögulega komið upp og leiðbeina starfsfólki, sjálfboðaliðum og fleirum til að bregðast eins og rétt við ef til þess kemur. Enda er best fyrir alla aðila máls, ef viðbrögð eru samræmd.
Á vef Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs má finna verkfæri varðandi atvik sem koma upp, ráðningar starfsfólks og sjálfboðaliða, tilkynningar um atvik o.fl. Á vefnum er einnig hægt að tilkynna atvik og óska eftir ráðgjöf.
Markmiðið með starfsemi Samskiptaráðgjafa er að stuðla að því að íþrótta- og æskulýðsstarf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æskulýðsstarf og leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar.
Starfssvið samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nær til allrar skipulagðrar starfsemi íþrótta og æskulýðssamtaka sem starfa á grundvelli æskulýðslaga og aðila sem gera samning við Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Það þýðir að öll þau sem sækja skipulagðar æfingar eða félagsstarf á landinu geta leitað til samskiptaráðgjafa varðandi einelti eða ofbeldi sem þau telja sig hafa orðið fyrir í sínu íþrótta- eða æskulýðsstarfi.