Formannafundur ÍRB Afmælisútgáfa 2026

Árlegur formannafundur Íþróttabandalags Reykjanesbæjar fór fram í vikunni. Á formannafundi koma saman allir formenn aðildarfélaga ÍRB ásamt stjórn ÍRB. Fundurinn í ár var sérstök afmælisútgáfa því nú eru liðin 30 ár frá stofnun ÍRB, en bandalagið var formlega stofnað 29. maí 1996. Þar sem um var að ræða tímamótafund var mikið um góða gesti þar á meðal fulltrúa frá ÍSÍ, UMFÍ, bæjarstjórn Reykjanesbæjar, íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar og fyrrverandi formenn ÍRB. Fyrsti formaður var Hjálmar Árnason og á eftir honum fylgdu, Ólafur Thordersen, Jóhann B. Magnússon, Ingigerður Sæmundsdóttir, Guðbergur Reynisson og núverandi formaður er Rúnar V. Arnarson. Eins og áður segir var fundurinn stærri en venjulega og yfir 50 gestir mættu og mikill hugur í fundargestum að efla íþróttastarf í Reykjanesbæ enn frekar. Meðal ræðumanna voru Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ og Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ. Í framhaldi af ræðu forseta ÍSÍ veitti Willum Þór tveimur núverandi stjórnarmönnum ÍRB viðurkenningu fyrir áratuga sjálfboðaliðastörf fyrir íþróttahreyfinguna. Hjördísi Baldursdóttur gjaldkera ÍRB var veitt silfurmerki ÍSÍ og Rúnari V. Arnarsyni formanni ÍRB var veitt gullmerki ÍSÍ.

Deila grein
Facebook
Twitter

GAGNLEGT

ÍRB á facebook