Hjólað í vinnuna – 7-27.maí

Hjólað í vinnuna er skemmtilegt og hvetjandi verkefni sem sameinar hreyfingu, útivist og góðan starfsanda. Með því að hjóla til vinnu bætum við heilsuna, minnkum umhverfisfótspor og styrkjum liðsheildina á vinnustaðnum. Hjólreiðar eru einföld og áhrifarík leið til að hreyfa sig daglega – og gleðin smitast fljótt þegar allir eru með.  

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur fyrirtæki og starfsfólk um land allt til að taka þátt og gera vinnudaginn bæði virkari og skemmtilegri. 

Tökum höndum saman – hjólum í vinnuna og mætum ferskari til leiks!

Deila grein
Facebook
Twitter

GAGNLEGT

ÍRB á facebook

Fleiri greinar