Ársþing Íþróttabandalags Reykjanesbæjar fór fram í Akademíunni fimmtudaginn 7. maí. Þingforseti var Friðjón Einarsson og skilaði hann starfi sínu með stakri prýði. Á ársþingi koma saman fulltrúar aðildarfélaga og aðrir gestir til að fara yfir starfsemi bandalagsins, ræða framtíðarsýn og þær áskoranir sem íþróttahreyfingin í Reykjanesbæ stendur frammi fyrir.
Þingið markaði ákveðin tímamót í sögu ÍRB því nú er eru liðin 30 ár frá stofnun ÍRB og var því um að ræða 30. ársþing bandalagsins. Á þessum þrjátíu árum hefur ÍRB gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og þróun íþróttastarfs í Reykjanesbæ og unnið með aðildarfélögum sínum að því að efla íþróttastarf fyrir alla aldurshópa.
Ragnheiður Ríkarðsdóttir sem situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ ávarpaði þingið og afhenti Íþróttafélaginu Nes endurnýjun á fyrirmyndafélagi ÍSÍ. Á þinginu var Rúnar Arnarson endurkjörin formaður ÍRB og mun því áfram leiða starf bandalagsins á komandi starfsári. Dagskrá þingsins fór annars vel fram og að því loknu var boðið upp á léttar veitingar í tilefni 30 ára afmæli ÍRB. Stjórn ÍRB vill þakka öllum þeim sem sátu þingið fyrir góða þátttöku, uppbyggilegar umræður og áframhaldandi stuðning við starfsemi bandalagsins.



